Kostur 09-851 

Til baka | Tafla

Frá

Ytri-Skógum, Eyjafjöllum

Ætt

ff: Kveikur 05-965

f: Steri 08-349
fm: Pilla 07-556
Kostur 09-851
mf: Hrani 01-182
m: Kólga 03-349
mm: Gjósta 02-325

Framætt: MMFF: Bútur 93-982, MMMF: SPónn 98-849



Lýsing

Stuttur og fremur sver haus. Gríðarmiklar útlögur. Vel fyllt bak. Áberandi breiðar, ekki langar en vöðvafylltar malir. Lærahold ákaflega góð. Sérlega breiðvaxinn og í meðallagi bollangur hrútur.

Ullarlýsing

Gulur í hnakka og á fótum en ekki að finna gul hár á bol. Dökkar doppur á haus. Ullarmagn í góðu meðallagi. Reyfið jafnt og fallegt. Togið jafnt og nokkuð langt.

Litaerfðir

Kostur er arfhreinn hvítur.

Arfgerð vegna riðusmits

Hlutlaus.

Lambhrútaskoðun
Ár:  2011
Fjöldi  173
Þungi  45.8
Fótleggur  108
Læri  17.4
Ull  7.8
Ómvöðvi  29.7
Ómfita  3
Lögun  4.1
Kynbótamat (BLUP)
50
60
70
80
90
100
110
120
130
140
150
 
Gerð 
128
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
Fita 
107
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
Kjötgæði 
115
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
Frjósemi 
100
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
Mjólkurlagni 
107
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 

Reynsla

Kostur 09-851 kom fram á sjónarsviðið ásamt Gosa 09-850 fyrir ári síðan í afkvæmarannsókn í Ytri-Skógum.
Í þeirri rannsókn sýndu afkvæmi hans þær góðu niðurstöður sem voru ítarlega raktar í hrútaskrá síðasta árs.
Kostur var talsvert mikið notaður í fyrra og stór hópur lamba undan honum kom til skoðunar í haust.
Þau staðfesta kosti hans, eru þó um meðallag hvað vænleika snertir en skipa Kosti í hóp efstu hrúta varðandi þykkt bakvöðva.
Þau eru jöfn að gerð, mikið um topplömb inn á milli og átti Kostur t.
d.
eitt af topplömbunum á héraðssýningu í Dalasýslu í haust.
Af sjálfu leiðir að reynsla um Kost sem ærföður er hverfandi önnur en sú að frjósemi hjá veturgömlum dætrum hans vorið 2011 var heldur undir meðaltali jafnaldranna á heimabúi.
BLUP mat, sem í meginatriðum er ætternismat, gefur síðan jákvæða mynd hvað mjólkurlagni varðar.