Borði 08-838 

Til baka | Tafla

Frá

Hesti, Borgarfirði

Ætt

ff: Tvinni 06-187

f: Taumur 07-782
fm: 01-005
Borði 08-838
mf: Hiti 04-152
m: 05-071
mm: 00-821

Framætt: FFF: Kveikur 05-965, FMMF: Moli 93-986, MFFF: Hylur 01-883, MMFF: Bjálfi 95-802



Lýsing

Hvítur, hyrndur. Nokkuð þróttlegur haus. Aðeins háar en mjög vel fylltar herðar. Mjög góðar útlögur. Bakið þykkt og vöðvafyllt, malir prýðilega fylltar og lærvöðvinn þykkur og vel lagaður. Sterkleg fótstaða. Í meðallagi bollangur og afar gæfur hrútur.

Ullarlýsing

Gulur á haus og fótum en lítið um gul hár í ull. Ullarmagn í meðallagi. Reyfið jafnt, togið í meðallagi fínt. Fremur jafnt og gott þel.

Litaerfðir

Borði er arfhreinn hvítur.

Arfgerð vegna riðusmits

Hlutlaus.

Lambhrútaskoðun
Ár:  2010 2011
Fjöldi  257 404
Þungi  45.6 46.7
Fótleggur  108 109
Læri  17.7 17.7
Ull  7.8 7.8
Ómvöðvi  30.9 30.5
Ómfita  2.8 3
Lögun  4.3 4.3
Kynbótamat (BLUP)
50
60
70
80
90
100
110
120
130
140
150
 
Gerð 
139
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
Fita 
120
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
Kjötgæði 
128
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
Frjósemi 
95
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
Mjólkurlagni 
112
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 

Reynsla

Borði 08-838 var annar hrútanna sem kom inn á stöð eftir afkvæmarannsókn á Hesti 2009.
Þar var hann að gefa mjög góða gerð hjá sláturlömbum.
Borði hefur síðan verið mikið notaður bæði árin á stöð og gríðarlega stórir afkvæmahópar hans hafa komið til skoðunar.
Lömbin undan Borða eru miklar glæsikindur á velli.
Þau eru mjög vöðvaþykk með frábær lærahold sem skipar honum í efsta sæti stöðvahrúta hvað þann eiginleika varðar.
Afkvæmi Borða eru aðeins yfir meðallagi hvað vænleika snertir en rétt að taka fram að örlítið bar á bitgöllum meðal þeirra í haust.
Þó Borði hafi ekki sýnt fituleysisáhrif heima á Hesti hækkaði kynbótamat hans fyrir fitu mikið þegar upplýsingar um hópinn úr sæðingum frá haustinu 2010 bættust þar við en oftar er það í hina áttina.
Miklar væntingar hafa verið bornar til Borða sem ærföður og gaf ætternismat hans það til kynna.
Upplýsingar um frjósemi veturgamalla dætra vorið 2011 lækkuðu matið hins vegar verulega sem og að tveggja vetra ær á Hesti voru talsvert undir meðaltali búsins.
Hvað mjólkurlagni varðar er ætternismat hans gott og með því hæsta af stöðvahrútum.
Reynsla dætra heima á Hesti gefur góð fyrirheit um að það sé rétt.