Hriflu, Þingeyjarsveit
Hvítur, vel hyrndur og svipfríður haus. Vel fylltur um herðar og útlögur góðar. Breitt og vel vöðvað bak. Mikil vöðvafylling í mölum. Gríðarlega þykkur, harður og vel lagaður lærvöðvi. Góð fótstaða. Ákaflega harðholda, bollangur, kviðléttur og frísklegur hrútur.
Fölgulur á haus og fótum. Smávegis um gul hár á bol. Fremur ullarlítill en reyfið jafnt. Fremur lítið þel en togið jafnt og hrokkið og í meðallagi fínt.
Hriflon er arfhreinn hvítur – gefur hreinhvítt.
Hlutlaus.
| Lambhrútaskoðun | ||
|---|---|---|
| Ár: | 2010 | 2011 |
| Fjöldi | 293 | 233 |
| Þungi | 45.3 | 46.8 |
| Fótleggur | 110 | 109 |
| Læri | 17.5 | 17.6 |
| Ull | 8.1 | 8 |
| Ómvöðvi | 30.7 | 30.4 |
| Ómfita | 2.3 | 2.5 |
| Lögun | 4.3 | 4.3 |
| Kynbótamat (BLUP) | |
|---|---|
|
50 60 70 80 90 100 110 120 130 140 150 |
|
| Gerð |
124 |
| Fita |
...151 |
| Kjötgæði |
140 |
| Frjósemi |
108 |
| Mjólkurlagni |
109 |
Hriflon 07-837 var fenginn til nota á stöð sumarið 2009 og var það val byggt á sérlega miklum kjötgæðum sem sláturlömb undan honum höfðu sýnt heima á Hriflu.
Sú reynsla ásamt frekari reynslu eftir sæðingar skipar honum í efsta sæti hrúta í landinu í BLUP matinu fyrir kjötgæði.
Hann hefur verið mikið notaður síðustu tvo vetur þannig að mjög stórir hópar lamba undan honum hafa komið til skoðunar bæði haust.
Hrútahóparnir voru mjög glæsilegir.
Útlögur lambanna eru að vísu oft ekki sérlega miklar, en vöðvafylling á baki, mölum og í lærum frábær.
Um leið eru lömbin með fádæmum fitulítil og njóta kostir hans sín því best þar sem vænleiki er góður.
Nokkur reynsla er komin á Hriflon sem ærföður og sú reynsla ásamt ætternisupplýsingum gefur fyrirheit um að Hriflon sé þrælöflugur ærfaðir, dætur hans séu mjög frjósamar og ágætlega mjólkurlagnar.