Brúnastöðum, Fljótum
Svartflekkóttur, vel hyrndur með breiðan og fríðan haus. Mjög þykkur og stuttur háls. Feikilega breiðar herðar og bringa. Góðar útlögur. Þykkt bak, vöðvafylltar malir og gríðarlega þykkur lærvöðvi. Sterkleg fótstaða. Frekar bolstuttur en feikna breiðvaxinn hrútur.
Þéttdropóttur um allan skrokk. Ullarmagn og þel í góðu meðallagi. Þelið þykkt. Togið jafnt, hrokkið og fremur fíngert.
Litur Sokka lýsir þeim að öllu leyti nema að ljóst er að hann erfir ekki mórauðan lit.
Arfblendinn verndandi.
| Lambhrútaskoðun | ||
|---|---|---|
| Ár: | 2010 | 2011 |
| Fjöldi | 165 | 211 |
| Þungi | 45.1 | 46.9 |
| Fótleggur | 108 | 109 |
| Læri | 17.6 | 17.6 |
| Ull | 7.9 | 7.8 |
| Ómvöðvi | 28.5 | 28.6 |
| Ómfita | 2.9 | 2.9 |
| Lögun | 4.1 | 4.1 |
| Kynbótamat (BLUP) | |
|---|---|
|
50 60 70 80 90 100 110 120 130 140 150 |
|
| Gerð |
133 |
| Fita |
111 |
| Kjötgæði |
120 |
| Frjósemi |
108 |
| Mjólkurlagni |
110 |
Sokki 07-835 kom á stöð sumarið 2009 og var þar byggt á mjög góðri reynslu um kjötgæði afkvæma hans á heimabúi.
Hann hefur verið mikið notaður bæði árin sem hann hefur verið á stöð og stórir hópar sona hans komið til skoðunar haustin 2010 og 2011.
Þessi lömb staðfesta vel að hann skilar gríðarlega miklum kjötgæðum til afkvæma sinna.
Lömbin eru áberandi breiðvaxin með miklar útlögur, góðan bakvöðva og mikil lærahold, aðeins sjónarmun á eftir Borða 08-838 hvað þann eiginleika varðar.
Hluti afkvæmanna er hins vegar eins og Sokki sjálfur óþarflega bolstuttur, en meirihluti þeirra prýðilega bollangur og yfirleitt vel þroskuð.
Margt álitlegra hrútlamba undan Sokka kom til skoðunar á héraðssýningum lambhrúta bæði á Snæfellsnesi og í Dalasýslu í haust.
Rétt er að taka fram að eitthvað bar á bitgöllum meðal þeirra í haust.
Talsverð reynsla er komin á Sokka sem ærföður sem bendir til þess að dætur hans séu frjósamar en einnig ágætlega mjólkurlagnar en upplýsingar haustsins munu skera frekar úr um þann eiginleika.
Staðfesti víðtækari reynsla þetta er Sokki feikilega mikill alhliða kynbótahrútur.