Tunguseli, Langanesi
Póstur er móhosóttur að lit með örlítinn hvítan blett í krúnu og fínhyrndur. Hann er fremur nett kind en léttfættur og sýnir mörg bestu einkenni og vitsmuni, sem einkenna úrvals forystufé. Aldursins vegna er hann þó að mestu óreyndur sem slíkur en hann er fæddur árið 2007 í Tunguseli á Langanesi, þar sem er ein af þekktustu hjörðum landsins fyrir ræktun á forystufé. Faðir Pósts var Flótti 02-059 en sá hrútur var dóttursonur Prests 94-823 sem á sínum tíma var fenginn frá Tunguseli, en undan honum er að finna gott forystufé víða um land. Móðir Pósts Lipurtá 98-887 var einnig dóttir Prests og er hann þannig ögn skyldleikaræktaður afkomandi hans, en er aftur á móti orðinn nokkuð fjarskyldur þeim forystuhrútum sem verið hafa á stöðvunum síðustu árin.
Undan Pósti geta allir litir komið fram eins og litur hans gefur ótvíræða vísbendingu um.
Hlutlaus.
| Lambhrútaskoðun |
|---|
| Kynbótamat (BLUP) | |
|---|---|
|
50 60 70 80 90 100 110 120 130 140 150 |
|
| Gerð |
64 |
| Fita |
117 |
| Kjötgæði |
96 |
| Frjósemi |
101 |
| Mjólkurlagni |
79 |