Hjarðarfelli,
Snæfellsnesi
Keyptur frá
Eiríki Helgasyni,
Stykkishólmi
Móflekkóttur, kollóttur með sveran og þróttlegan haus. Kúptar herðar og prýðilega holdfylltar. Góðar útlögur. Góð bakhold og prýðisgóð vöðvafylling í mölum og lærum. Fótstaða sterkleg. Vel í meðallagi bollangur og kviðléttur hrútur.
Mórauði liturinn ljós og upplitaður. Reyfið jafnt, mikið þel en sáralítið tog. Ullarmagn í tæpu meðallagi.
Litur Skrauta sjálfs sýnir að mögulegt á að vera að fá fram alla liti hjá afkvæmum hans leyfi erfðaeðli mæðranna það.
Arfblendinn verndandi.
| Lambhrútaskoðun | ||
|---|---|---|
| Ár: | 2010 | 2011 |
| Fjöldi | 59 | 45 |
| Þungi | 48.2 | 48.4 |
| Fótleggur | 111 | 111 |
| Læri | 17.2 | 17.2 |
| Ull | 7.9 | 8 |
| Ómvöðvi | 27.6 | 28.1 |
| Ómfita | 3.6 | 3.5 |
| Lögun | 3.7 | 3.8 |
| Kynbótamat (BLUP) | |
|---|---|
|
50 60 70 80 90 100 110 120 130 140 150 |
|
| Gerð |
108 |
| Fita |
113 |
| Kjötgæði |
111 |
| Frjósemi |
97 |
| Mjólkurlagni |
107 |
Skrauti 07-826 kom á stöð sumarið 2009.
Hann hafði strax sem lamb vakið mikla athygli sem einstaklingur en var fyrsta árið notaður í fremur lítilli hjörð þar sem hann var að gefa mjög góð lömb.
Hann hefur verið talsvert notaður þau tvö ár sem hann hefur verið á stöð og nokkur hópur sona hans komið til skoðunar bæði haustin.
Synir hans eru yfir meðallagi í vænleika, vel gerðir með góðar bakvöðvamælingar og samsvara sér vel á velli.
Sú reynsla sem fengin er á Skrauta sem ærföður bendir til þess að frjósemi dætra sé um meðallag og BLUP mat fyrir mjólkurlagni er gott.
Frekari reynsla fæst þó á það í haust þegar til uppgjörs kemur stór hópur veturgamalla dætra eftir fyrsta ár hans á stöð.