Heydalsá, Steingrímsfirði
Hvítur, kollóttur. Þróttlegur og svipmikill haus. Góðar útlögur, breitt og vel vöðvafyllt bak. Vöðvafylling á mölum góð sem og læraholdin. Örlítið útskeifur á framfótum en fótstaða annars sterkleg. Jafnvaxinn og fremur bollangur hrútur.
Hreinhvítur. Reyfið þykkt. Ullarmikill með mikið og þykkt þel. Togið stutt en hrokkið og fremur fínt.
Blossi er arfhreinn hvítur.
Hlutlaus.
| Lambhrútaskoðun | ||
|---|---|---|
| Ár: | 2010 | 2011 |
| Fjöldi | 118 | 198 |
| Þungi | 48 | 49 |
| Fótleggur | 112 | 111 |
| Læri | 17.4 | 17.2 |
| Ull | 8.4 | 8.4 |
| Ómvöðvi | 28.3 | 28.1 |
| Ómfita | 3 | 3.1 |
| Lögun | 3.9 | 4 |
| Kynbótamat (BLUP) | |
|---|---|
|
50 60 70 80 90 100 110 120 130 140 150 |
|
| Gerð |
104 |
| Fita |
124 |
| Kjötgæði |
116 |
| Frjósemi |
104 |
| Mjólkurlagni |
101 |
Blossi 07-823 var fenginn á stöð haustið 2009 fyrst og fremst á grundvelli niðurstöðu úr afkvæmarannsókninni á Heydalsá fyrir stöðvarnar.
Þar atti hann kappi við úrvalshrúta víða úr eystra Vestfjarðahólfinu ásamt hópi fjölmargra heimahrúta.
Blossi er fæddur á Heydalsá vorið 2007 og vakti haustið 2008 athygli fyrir góðan afkvæmahóp þó að ekki stæðist hann þá Boga 04-814 og öflugustu hrútunum úr hans ættboga snúning.
Munaði þar einkum að hann býr áreiðanlega ekki yfir jafn miklu fituleysi og þeir hrútar.
Afkvæmahópurinn undan honum haustið 2009 var ákaflega góður og einkum voru gimbrarnar flestar hrein djásn.
Auk afbragðs gerðar var þroski þessara lamba einnig áberandi mikill.
Lítill vafi er að hér er enn einn úrvalshrúturinn frá Heydalsá sem lambafaðir.
Vegna aldurs er nær engin reynsla fengin um Blossa sem ærföður en frjósemi veturgömlu ánna undan honum vorið 2009 stóð ekki jafnfætis því er var hjá jafnöldrum þeirra á búinu.
BLUP mat hans um þessa eiginleika er þó ákaflega hagstætt.
Móðir hans, 04-622, var tvílembd gemlingur, en síðan geld sem tvævetla.
Hún hefur síðan tvisvar verið þrílembd, annars tvílembd og verið mikil afurðaær og mörg afkvæmanna sett á.
Hún er með 6,3 afurðastig.