Prjónn 07-812 

Til baka | Tafla

Frá

Hesti, Borgarfirði

Ætt

ff: Kveikur 05-965

f: Þráður 06-996
fm: 03-249
Prjónn 07-812
mf: Gaddur 04-950
m: 05-110
mm: 00-927

Framætt: MMF: Askur 97-835



Lýsing

Þróttlegur haus með kröpp horn. Mjög vel fylltar herðar og allgóðar útlögur. Bakið mjög þykkt og malir langar og vel vöðvafylltar. Þykkur og góður lærvöðvi. Rétt og góð fótstaða. Nokkuð bollangur, þéttvaxinn og föngulegur gripur á velli.

Ullarlýsing

Gulur á haus og fótum og aðeins um gul hár í ull. Ullarmagnið er í góðu meðallagi. Þelið þykkt og jafnt. Togið ekki langt en fremur jafnt, fínt og gljáandi.

Litaerfðir

Arfblendinn hvítur, en erfir hvorki mórauðan lit eða tvílit.

Arfgerð vegna riðusmits

Hlutlaus.

Lambhrútaskoðun
Ár:  2009 2010 2011
Fjöldi  370 301 104
Þungi  47.5 45.5 46.1
Fótleggur  108 107 106
Læri  17.5 17.5 17.6
Ull  7.8 7.8 7.9
Ómvöðvi  29.3 29.1 29.4
Ómfita  2.8 2.7 2.8
Lögun  4.2 4.1 4.3
Kynbótamat (BLUP)
50
60
70
80
90
100
110
120
130
140
150
 
Gerð 
120
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
Fita 
119
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
Kjötgæði 
119
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
Frjósemi 
94
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
Mjólkurlagni 
102
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 

Reynsla

Prjónn 07-812 kom á stöð haustið 2008 á grunni góðrar niðurstöðu úr afkvæmarannsókn á Hesti, sem sýndu mikil kjötgæði hjá afkvæmum hans.
Hann átti síðan haustið 2009 feikilega stóran hóp hrútlamba í skoðun um allt land og síðan bættist við annar mjög stór hópur á síðasta hausti.
Þessir stóru lambahópar hafa rækilega staðfest mikil kjötgæði hjá afkvæmum hans, bæði góða gerð, þykka vöðva og litla fitu auk þess sem lömbin eru oft vel bollöng og þroskamikil.
Vegna ungs aldurs er reynsla af eiginleikum dætra hans enn nokkuð takmörkuð.
Hann átti að vísu mjög stóran hóp veturgamalla áa um allt land vorið 2010 og var frjósemi þeirra í slöku meðallagi.
Sú reynsla sem fengin er ásamt ætternisupplýsingum bendir til að mjólkurlagni dætra Prjóns sé góð.