Dökkvi 07-809 

Til baka | Tafla

Frá

Hesti, Borgarfirði

Ætt

ff: Nári 04-153

f: Bifur 06-994
fm: 02-157
Dökkvi 07-809
mf: Prins 00-081
m: 04-390
mm: 01-038

Framætt: MMFF: Lækur 97-843



Lýsing

Svipfallegur og vel hyrndur. Herðabreiður og vel fylltur vöðvum um herðar með ágætar útlögur. Holdfylling á baki, í mölum og lærum mjög góð. Fótstaðan er góð. Bollengd í meðallagi en þéttvaxinn og vel gerður gripur.

Ullarlýsing

Svartur með dökkan og góðan lit. Ullarmikill. Reyfið jafnt og þykkt. Togið meðalfínt og jafnt.

Litaerfðir

Sem svört kind er Dökkvi arfhreinn hlutlaus í A-sætinu, en hann erfir hvorki mórauðan lit né tvílit.

Arfgerð vegna riðusmits

Arfblendinn verndandi.

Lambhrútaskoðun
Ár:  2009 2010
Fjöldi  157 54
Þungi  45.5 44.7
Fótleggur  110 110
Læri  17.2 17.2
Ull  7.8 7.8
Ómvöðvi  30.5 29.3
Ómfita  3.1 2.8
Lögun  4.3 4.2
Kynbótamat (BLUP)
50
60
70
80
90
100
110
120
130
140
150
 
Gerð 
116
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
Fita 
114
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
Kjötgæði 
115
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
Frjósemi 
102
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
Mjólkurlagni 
111
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 

Reynsla

Dökkvi var einn af þeim fjórum hrútum sem komu á stöðvarnar haustið 2008 að aflokinni afkvæmarannsókninni á Hesti þá um haustið.
Í hrútaskrá á síðasta ári er gerð grein fyrir helstu niðurstöðum úr þeirri rannsókn.
Dökkvi var mikið notaður síðasta vetur og kom hópur lamba undan honum til skoðunar.
Ólíklegt er að sem kynbótakind verði hann annað en litli bróðir Kveiks 05-965 en þeir eru sammæðra.
Hann skilar greinilega hinum gríðarþykka og vel lagaða bakvöðva sem þekktur er hjá föður hans, en lærahold sem eru góð eru þó aðeins breytileg.
Vænleiki lamba virðist aðeins umfram meðaltal.
Sem ærfaðir er Dökkvi nánast alveg óreyndur enn nema veturgömlu ærnar undan honum fæddu fleiri lömb en jafnöldrur á Hesti.
BLUP ætternismatið spáir honum sem góðum ærföður.