Fannar 07-808 

Til baka | Tafla

Frá

Ytri-Skógum, Eyjafjöllum

Ætt

ff: Hlekkur 02-201

f: Alki 06-297
fm: Bytta 01-255
Fannar 07-808
mf: Blettur 05-967
m: Rjúpa 06-505
mm: Skrukka 04-413

Framætt: FFFF: Lækur 97-843, FMFF: Spónn 98-849



Lýsing

Fremur nettur haus en vel hyrndur. Herðar ávalar, vel holdfylltar og útlögur miklar. Bakið feikilega vöðvaþykkt og malir múraðar vöðvum. Lærvöðvinn vel lagaður og þykkur. Góð fótstaða. Ákaflega þéttvaxinn og snotur hrútur en ekki nema í meðallagi bollangur.

Ullarlýsing

Fölgulur á haus og vottar aðeins fyrir gulum hárum á bol. Ullarmagn í meðallagi. Þelið þykkt og togið hrokkið, nokkuð jafnt en fínleiki tæplega í meðallagi.

Litaerfðir

Fannar er arfblendinn hvítur og erfir einnig bæði mórauðan lit og tvílit þannig að allra lita má vænta hjá afkvæmum hans.

Arfgerð vegna riðusmits

Hlutlaus.

Lambhrútaskoðun
Ár:  2009 2010 2011
Fjöldi  222 221 124
Þungi  46.4 44.2 46.1
Fótleggur  110 109 111
Læri  17.4 17.6 17.5
Ull  7.9 7.9 8
Ómvöðvi  31.2 31 30.8
Ómfita  3.1 2.9 2.9
Lögun  4.3 4.3 4.3
Kynbótamat (BLUP)
50
60
70
80
90
100
110
120
130
140
150
 
Gerð 
125
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
Fita 
112
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
Kjötgæði 
117
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
Frjósemi 
101
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
Mjólkurlagni 
101
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 

Reynsla

Fannar 07-808 kom veturgamall á stöð haustið 2008 og er því að hefja sinn fjórða vetur þar ásamt At 06-806 og Púka 06-807.
Hann hefur verið gríðarlega mikið notaður öll árin á stöð og fékk m.
a.
viðurkenningu sæðingastöðvanna sem lambafaðir árið 2009.
Þriðja árið í röð skipar hann toppinn í bakvöðvaþykkt lamba, sjónarmun á undan Gosa 09-850.
Það eitt og sér er einstakt afrek hjá sæðingastöðvahrút.
Hann er mikill kjötgæðahrútur sem gefur lömb um meðaltal í vænleika.
Fyrsti sonur hans, Snævar 10-875, kemur til notkunar á stöð í vetur.
Talsverð reynsla er komin á Fannar sem ærföður og í þeim efnum er hann hrútur um meðaltal, bæði hvað frjósemi og mjólkurlagni snertir.