Fálki 06-834 

Til baka | Tafla

Frá

Borgarfelli, Skaftártungu

Ætt

ff: Ægir 03-129

f: Mímir 04-951
fm: 01-022
Fálki 06-834
mf: Áll 00-868
m: Sjöstjarna 03-362
mm: Hempa 97-777



Lýsing

Hvítur, hyrndur með sveran og þróttlegan haus. Stuttur háls og prýðisvel holdfylltar herðar. Góðar útlögur. Bakið sterkt og vöðvinn þykkur. Malir mjög breiðar með mikilli vöðvafyllingu. Frábær lærahold. Vel í meðallagi bollangur hrútur með sterklega fótstöðu.

Ullarlýsing

Sterkgulur í hnakka, á haus og fótum. Örlítið af gulum hárum í ull. Fremur ullarlítill. Þelið sæmilega jafnt. Togið lítið og ójafnt en yfirleitt fíngert.

Litaerfðir

er arfhreinn hvítur.

Arfgerð vegna riðusmits

Hlutlaus.

Lambhrútaskoðun
Ár:  2010 2011
Fjöldi  245 48
Þungi  46.1 46.6
Fótleggur  108 107
Læri  17.4 17.3
Ull  7.8 7.8
Ómvöðvi  29.1 29.2
Ómfita  2.6 2.9
Lögun  4.2 4.2
Kynbótamat (BLUP)
50
60
70
80
90
100
110
120
130
140
150
 
Gerð 
133
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
Fita 
124
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
Kjötgæði 
128
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
Frjósemi 
99
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
Mjólkurlagni 
99
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 

Reynsla

Fálki 06-834 var fenginn á stöð sumarið 2009 frá Borgarfelli í Skaftártungu.
Hann var falaður til slíkra nota á grunni feikilega góðra niðurstaðna fyrir kjötgæði sláturlamba undan honum árin 2007 og 2008.
Haustið 2007 kom lambahópur undan Fálka sem vakti verðskuldaða athygli fyrir frábærar kjötmatsniðurstöður og líkar niðurstöður endurtók lambahópurinn undan honum haustið 2008.
Þá var meðalfallþungi sláturlambanna 17,1 kg og fyrir gerð var matið 10,8 að jafnaði og 6,2 fyrir fitu.
Vænleiki lambanna undan Fálka hefur verið nærri búsmeðaltali.
Haustið 2009 mátti sjá margan glæsigrip í lambahópnum undan honum.
Aldur Fálka gerir að takmörkuð reynsla er fengin um hann sem ærföður.
Dætur hans á Borgarfelli vorið 2009 voru jafnar jafnöldrum sínum um frjósemi.
Sigfús gefur þeim þá umsögn að þær séu góðar mæður og mjólkurlagnar.
Móðir hans, Sjöstjarna 03-362, var einlembd sem gemlingur og tvævetlan en síðan tvílembd og hafa flest afkvæmi hennar orðið ásetningslömb.
Hún er með 5,4 afurðastig.