Stáli 06-831 

Til baka | Tafla

Frá

Teigi 1, Fljótshlíð

Ætt

ff: Kuldi 03-924

f: Tvistur 05-438
fm: 02-222
Stáli 06-831
mf: Bjargvættur 97-869
m: 02-243
mm: Vala 97-717

Framætt: MMF: Hörvi 92-972, FMFF: Lækur 97-843



Lýsing

Hvítur, vel hyrndur með fremur fríðan og nokkuð sveran haus. Þykkur háls og mjög vöðvafylltar herðar. Vottar fyrir slöðri aftan herða en útlögur mjög góðar. Bakvöðvinn þykkur og malahold gríðarmikil. Frábær lærahold, lærvöðvi sérstaklega þykkur og kúptur. Góð fótstaða. Ágætlega bollangur, kviðléttur og frísklegur hrútur.

Ullarlýsing

Fölgulur á haus og fótum. Lítið um gul hár í ull. Ullarmagn í tæpu meðallagi. Þelið jafnt og þykkt en togið stutt og gisið.

Litaerfðir

Stáli er arfblendinn hvítur en erfir hvorki mórautt né tvílitt.

Arfgerð vegna riðusmits

Hlutlaus.

Lambhrútaskoðun
Ár:  2010 2011
Fjöldi  154 45
Þungi  46.2 46.2
Fótleggur  110 110
Læri  17.5 17.3
Ull  7.9 8
Ómvöðvi  28.6 28.3
Ómfita  2.7 2.7
Lögun  4 4
Kynbótamat (BLUP)
50
60
70
80
90
100
110
120
130
140
150
 
Gerð 
117
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
Fita 
140
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
Kjötgæði 
131
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
Frjósemi 
106
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
Mjólkurlagni 
113
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 

Reynsla

Stáli 06-831 kom til notkunar á stöð sumarið 2009 á grunni mjög góðrar reynslu af heimabúi fyrir kjötgæði sláturlamba.
Hann var mikið notaður fyrsta vetur sinn á stöð en heldur minna í fyrra.
Þó nokkur hópur hrútlamba undan honum hefur komið til skoðunar og eru þau breytileg að gerð en inn á milli lömb sem sýna mikla kosti, sérstaklega hvað mala- og lærahold snertir.
Hann skipar sér ekki á toppinn hvað bakvöðvamælingar snertir líkt og Bjargvættur afi hans gerði á sinni tíð.
Stáli er þó að skila verulegum kjötgæðum til afkvæma sinna sem eru yfirleitt nokkuð kviðlétt og frískleg á velli.
Líkt og í fyrra bar eitthvað á bitgöllum hjá afkvæmum hans umfram aðra sæðingastöðvahrúta.
Nokkur reynsla er að koma á Stála sem ærföður og viðbótarupplýsingar um stóran hóp veturgamalla dætra hans í vor hækkaði frjósemismatið verulega líkt og væntingar stóðu til út frá móðurætt hans og lýst var í hrútaskrá síðasta árs.
Hvað mjólkurlagni snertir bendir sú reynsla sem komin er til þess að dætur hans séu góðar mjólkurær.
Einnig skal tekið fram að dætur hans standa að baki mörgum líflömbum heima í Teigi núna í haust.
Staðfesti frekari reynsla þetta er Stáli mjög mikill alhliða kynbótahrútur þar sem hann er einnig fjarskyldur þeim línum sem vinsælastar hafa verið á stöðvunum undanfarin ár.