Týr 06-819 

Til baka | Tafla

Frá

Melum 1, Árneshreppi

Ætt

ff: Gormur 99-606

f: Kútur 03-937
fm: 00-425
Týr 06-819
mf: Nagli 98-064
m: Þilja 01-513
mm: 98-308

Framætt: FMF: Þyrill 94-399



Lýsing

Hvítur, kollóttur. Breiður og svipfríður haus. Hálsinn stuttur og sver og herðarnar breiðar. Útlögur prýðilegar. Góð bakhold og vel vöðvafylltar malir. Lærvöðvi breiður og mjög þykkur. Öflug fótstaða. Í meðallagi bollangur hrútur sem samsvarar sér ágætlega.

Ullarlýsing

Hreinhvítur en dökkar dröfnur á haus og eyrum. Engin svört hár í reyfi. Ákaflega ullarmikill með þykkt þel. Hrokkið, meðalfínt og mikið tog.

Litaerfðir

Týr er arfhreinn hvítur.

Arfgerð vegna riðusmits

Hlutlaus.

Lambhrútaskoðun
Ár:  2010
Fjöldi  39
Þungi  48.4
Fótleggur  111
Læri  17.5
Ull  8.3
Ómvöðvi  28.7
Ómfita  3.3
Lögun  4
Kynbótamat (BLUP)
50
60
70
80
90
100
110
120
130
140
150
 
Gerð 
123
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
Fita 
100
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
Kjötgæði 
109
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
Frjósemi 
98
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
Mjólkurlagni 
92
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 

Reynsla

Týr 06-819 var fenginn frá Melum 1 í Árneshreppi sumarið 2009 vegna mjög jákvæðrar reynslu af afkvæmum hans þar.
Að ætterni er rétt að vekja athygli á því að móðurfaðir hans Nagli 98-064 hefur verið ættfaðir margra þeirra úrvalsgripa sem komið hafa frá Melum 1 á síðustu árum.
Hrútahópurinn á Melum frá árinu 2006 er einhver sá einstakasti að gæðum sem sést hefur á einu búi og Týr gaf mjög athyglisverðar niðurstöður í afkvæmarannsóknum heimahrútanna bæði 2007 og 2008.
Ómmælingar lambanna hafa að vísu verið um meðaltal, en lömbin mjög vel gerð með mikil lærahold og vænleiki þeirra góður.
Það var einn þeirra þátta sem taldi nokkuð við val hans á stöð.
Kjötmat sláturlambanna hefur verið feikilega gott sérstaklega um gerð falla.
Haustið 2009 var hópur glæsilamba undan honum heima á Melum.
Ekki er enn fengin nein teljandi reynsla um Tý sem ærföður en allstór hópur af veturgömlum dætrum hans á Melum sýndi vorið 2009 frjósemi talsvert umfram jafnöldrur sínar á búinu.
Móðir hans Þrá 01-513 var felld árið 2008.
Hún var geld gemlingsárið en ætíð tvílembd eftir það og farsæl afurðaær með 5,3 afurðastig.