Púki 06-807 

Til baka | Tafla

Frá

Bergsstöðum, Vatnsnesi

Ætt

ff: Áll 00-868

f: Ári 04-096
fm: 01-168
Púki 06-807
m: Alda 03-341

Framætt: MFF: Lóði 00-871



Lýsing

Sver, þróttlegur haus og vel hyrndur. Breiðar aðeins ávalar og gríðarlega vel holdfylltar herðar. Mjög breið bringa og miklar útlögur. Bak og malir mjög vel vöðvafylltar og lærvöðvi gríðarlega öflugur. Sterkleg fótstaða. Breiðvaxinn, mjög þéttholda og í meðallagi bollangur.

Ullarlýsing

Gulur á haus og fótum og nokkuð mikið um gul hár á baki og mölum. Ullarmagn í góðu meðallagi. Jafnt reyfi en togið aðeins misjafnt og fínleiki í meðallagi. Ullin þokkalega gljáandi.

Litaerfðir

Púki er arfhreinn hvítur.

Arfgerð vegna riðusmits

Arfblendinn verndandi.

Lambhrútaskoðun
Ár:  2009 2010 2011
Fjöldi  403 107 181
Þungi  49 47.5 48.3
Fótleggur  112 112 110
Læri  17.3 17.4 17.4
Ull  7.7 7.8 7.8
Ómvöðvi  28.6 28.2 28.3
Ómfita  3 2.9 3.1
Lögun  3.9 3.9 4
Kynbótamat (BLUP)
50
60
70
80
90
100
110
120
130
140
150
 
Gerð 
109
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
Fita 
124
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
Kjötgæði 
118
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
Frjósemi 
115
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
Mjólkurlagni 
111
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 

Reynsla

Púki 06-807 kom á stöð sumarið 2008 og var feikimikið notaður fyrsta árið en þá hélt ákaflega illa við honum.
Notkun hans varð því minni síðasta vetur en sæðisgæði reyndust þá í lagi, þannig að allstór lambahópur kom til skoðunar á liðnu hausti en ekkert í líkingu við stóra hópinn haustið 2009.
Lömbin undan Púka úr sæðingum hafa sýnt að ekki er rétt að skipa honum í hóp topphrútanna um kjötgæði, þó að þau sé samt mjög mikil.
Hann erfir mjög litla fitu, þannig að hann flokkast sem fituleysiskind.
Gerð lambanna er all breytileg.
Alltaf kemur samt mikill hópur af afbragðsvel gerðum lömbum undan honum og komnir eru fram mjög öflugir synir hans sem kjötgæðakindur.
Þroski lamba undan Púka vekur einnig eftirtekt þannig að það eitt mælir mjög með notkun hans.
Mestu yfirburðir Púka virðast þó þeir að hann er frábær ærfaðir.
Dætur hans heima á Bergsstöðum hafa sýnt óvanalega frjósemi og veturgömlu ærnar undan honum um allt land vorið 2010 sýndu að því leyti óvanalega yfirburði.
Þær virðast einnig um leið vera miklar mjólkurær.