Kveikur 05-965 

Til baka | Tafla

Frá

Hesti, Borgarfirði

Ætt


f: Logi 04-151
Kveikur 05-965
mf: Prins 00-081
m: 04-390
mm: 01-038



Lýsing

Hvítur, vel hyrndur og svipfríður. Sver og þykkur háls sem fyllir vel að holdfylltum herðum. Breið og víð bringa. Þykkt bak, malir breiðar og kúptar, lærvöðvi mjög þykkur með áberandi góða innanlærisfyllingu. Fótstaða góð. Í meðallagi bollöng, mjög prúð og gæf kind.

Ullarlýsing

Gulur í hnakka, á fótum og dindli en lítið um gul hár í reyfi og engin svört hár fundust. Reyfið jafnt, ullarmagn í meðallagi og togið meðalfínt.

Litaerfðir

Kveikur er arfblendinn hvítur en erfir hvorki mórautt né tvílitt.

Arfgerð vegna riðusmits

Hlutlaus.

Lambhrútaskoðun
Ár:  2007 2008 2009 2010 2011
Fjöldi  364 274 437 442 249
Þungi  47.9 47.2 49 47.1 48.1
Fótleggur  111 110 111 109 110
Læri  17.3 17.3 17.4 17.5 17.4
Ull  7.9 7.8 7.8 7.9 7.9
Ómvöðvi  29.3 30 29.9 30 29.4
Ómfita  2.4 2.5 2.5 2.3 2.5
Lögun  4.1 4.2 4.2 4.2 4.1
Kynbótamat (BLUP)
50
60
70
80
90
100
110
120
130
140
150
 
Gerð 
117
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
Fita 
135
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
Kjötgæði 
128
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
Frjósemi 
104
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
Mjólkurlagni 
113
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 

Reynsla

Kveikur kom ásamt Rafti 05-966 til notkunar á stöð haustið 2006 þegar fyrir lágu frækilegar niðurstöður þeirra úr afkvæmarannsókn.
Kveikur hefur síðan verið feikilega mikið notaður á stöðvunum í þrjú ár.
Afkvæmi hans hafa rækilega staðfest að hann er einstök kynbótakind með tilliti til kjötgæða þar sem fer saman gríðarlega góð vöðvasöfnun og lítil fita.
Margt bendir til að Kveikur gefi heldur þroskameira fé en Raftur.
Á síðasta hausti kom strax fram mjög stór hópur sona Kveiks um allt land sem eru gríðarlega miklar kostakindur með tilliti til kjötgæða.
Tveir synir hans eru þegar komnir á stöð og þess má vænta að þeim fjölgi stórlega á næsta ári.
Mikil reynsla er fengin um Kveik sem ærföður og virðast kostir hans í þeim efnum ótvíræðir.
Frjósemi er vel yfir meðallagi og niðurstöður fyrir rúmlega þúsund dætur hans á síðasta vori styrkja það enn frekar.
Þessar ær virðast einnig vera mjög mjólkurlagnar.
Kveikur hefur því tvímælalaust skipað sér sess sem einn af öflugustu kynbótahrútum sem fram hafa komið hér á landi og reynsla er fengin um.