Shrek 05-817 

Til baka | Tafla

Frá

Kollsá, Hrútafirði

Ætt

ff: Baugur 01-743

f: Heydal 02-212
fm: 97-346
Shrek 05-817
mf: Dalur 97-740
m: 01-129
mm: 96-038



Lýsing

Ákaflega breiður og sterklegur haus. Mjög breiðar, kúptar og kjötfylltar herðar og miklar útlögur. Bakið breitt og vel vöðvað. Breiðar og vöðvafylltar malir og þykkur og mikill lærvöðvi. Sterkir og öflugir fætur. Í meðallagi bollangur en mjög breiður og þykkvaxinn hrútur.

Ullarlýsing

Svartar dropur á haus og örlítið gulur á fótum en ekki fundust dökk hár á bol. Ullarmagnið í meðallagi en reyfið misjafnt og togið á aftari hluta skrokksins gróft.

Litaerfðir

Shrek er arfhreinn hvítur.

Arfgerð vegna riðusmits

Hlutlaus.

Lambhrútaskoðun
Ár:  2009 2010
Fjöldi  82 53
Þungi  49.5 49.9
Fótleggur  111 112
Læri  17.3 17.3
Ull  8.1 8.1
Ómvöðvi  27.8 27.4
Ómfita  3.2 3
Lögun  3.8 3.7
Kynbótamat (BLUP)
50
60
70
80
90
100
110
120
130
140
150
 
Gerð 
112
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
Fita 
111
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
Kjötgæði 
111
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
Frjósemi 
96
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
Mjólkurlagni 
120
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 

Reynsla

Shrek kom á stöð sumarið 2008.
Sérstaklega var horft til ætternis hans sem gaf fyrirheit um öflugan ærföður en hann hafði líka verið að skila mjög góðum sláturlömbum.
Hann var talsvert notaður síðasta vetur og drjúgstór lambahópur til skoðunar undan honum.
Hópurinn skapaði jákvæða mynd af föður sínum, þroskamikil lömb, aðeins breytileg í gerð, en hópur öflugra hrútsefna og lærahold oftast góð.
Ætterni hans lofar miklu um hann sem ærföður en bein reynsla er enn takmörkuð vegna ungs aldurs dætranna.
Ekkert bendir þó til annars en hann muni standa undir væntingum.