Ylur 05-805 

Til baka | Tafla

Frá

Hjarðarfelli, Snæfellsnesi

Ætt

ff: Áll 00-868

f: Hylur 01-883
fm: 96-399
Ylur 05-805
mf: Sekkur 97-836
m: 00-061
mm: 96-658

Framætt: MMF: Álfur 90-973



Lýsing

Fríður, svipmikill haus og vel hyrndur. Breiðar og vel fylltar herðar, miklar útlögur. Bakið sterkt og öflugt. Malir langar, breiðar og vöðvafylltar. Ágæt lærahold. Sterkleg fótstaða. Bollangur og ákaflega vel gerður hrútur.

Ullarlýsing

Hreinhvítur. Ullarmagn í meðallagi. Jafnt reyfi. Tog er fremur stutt á baki og grófleiki togsins í meðallagi.

Litaerfðir

Ylur er arfhreinn hvítur.

Arfgerð vegna riðusmits

Hlutlaus.

Lambhrútaskoðun
Ár:  2009 2010
Fjöldi  184 35
Þungi  47.4 43.9
Fótleggur  111 109
Læri  17.2 17.2
Ull  8 8.1
Ómvöðvi  29.3 28.6
Ómfita  3.2 2.8
Lögun  4 4
Kynbótamat (BLUP)
50
60
70
80
90
100
110
120
130
140
150
 
Gerð 
110
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
Fita 
121
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
Kjötgæði 
117
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
Frjósemi 
87
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
Mjólkurlagni 
109
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 

Reynsla

Ylur kom á stöð sumarið 2008 en hann hafði verið að skila ákaflega athyglisverðum lömbum heima á Hjarðarfelli líkt og sagt er frá í hrútaskrá síðasta árs.
Hann var mikið notaður síðasta vetur og kom því drjúgur hópur afkvæma hans til skoðunar á þessu hausti.
Í heild var þetta föngulegur hópur vel gerðra lamba.
Þau eru jafnvaxin með bakvöðvaþykkt um meðallag, aðeins breytileg lærahold en hópur úrtökugóðra hrútsefna í hópnum sem skoðaður var.
Nokkur reynsla er komin á Yl sem ærföður heima á Hjarðarfelli þar sem frjósemi dætra hans hefur verið í tæpu meðallagi en þær reynst mjög mjólkurlagnar.
Sem ærfaðir virðist hann því líkt og í öðru koma fram sem ákveðin spegilmynd föður síns.