Hvítur og hyrndur, fremur svipfríður. Breiðar, kúptar og vel vöðvaðar herðar og bolurinn sívalur. Sterkt og mjög átökugott bak. Malir áberandi kúptar og vöðvafylltar. Læraholdin frábær og fótstaðan rétt. Áberandi harðholda og í meðallagi bollangur hrútur. Rólegur í umgengni.
Sterkgulur á haus og fótum, mikið af gulum hárum í reyfi og einnig fundust svört hár. Mjög togstuttur en ullin mjúk.
Cat er arfhreinn hvítur.
Hlutlaus.
| Lambhrútaskoðun | |||
|---|---|---|---|
| Ár: | 2008 | 2009 | 2010 |
| Fjöldi | 103 | 90 | 61 |
| Þungi | 44.6 | 47.7 | 43.6 |
| Fótleggur | 108 | 110 | 108 |
| Læri | 17.3 | 17.5 | 17.5 |
| Ull | 7.7 | 7.6 | 7.6 |
| Ómvöðvi | 29.4 | 29.5 | 29.1 |
| Ómfita | 2.9 | 3 | 2.6 |
| Lögun | 4.1 | 4.2 | 4.1 |
| Kynbótamat (BLUP) | |
|---|---|
|
50 60 70 80 90 100 110 120 130 140 150 |
|
| Gerð |
128 |
| Fita |
123 |
| Kjötgæði |
125 |
| Frjósemi |
103 |
| Mjólkurlagni |
98 |
Cat kom á stöð haustið 2007 úr stórri rannsókn stöðvanna í Norður-Þingeyjarsýslu þá um haustið.
Hann hafði þannig traustari reynslu sem öflug kynbótakind um kjötgæði en flestir aðrir hrútar, sem þangað rata.
Hann hefur hins vegar ekki verið verulega mikið notaður þau tvö ár sem hann hefur verið á stöð.
Afkvæmi hans hafa hins vegar sýnt að hann er að skila feikilega vel vöðvafylltum afkvæmum með litla fitusöfnun.
Lömbin eru hins vegar oft ullarlítil og þungi á fæti vart nema í meðallagi en þau skerast ákaflega vel þannig að fallþungi lamba undan Cat er góður.
Dætur Cat eru vel frjósamar ær og þær upplýsingar sem fyrir liggja benda til að mjólkurlagni þeirra muni um meðallag.
Cat er því hrútur sem áreiðanlega á skilið meiri notkun en hann hefur fengið til þessa á stöð.