Staðarbakka, Hörgárdal
Hvítur og hyrndur. Svipfríður og sterklegur haus. Mjög sver háls, fremur háar herðar en feikilega breiðar og vöðvafylltar. Mjög breið bringa og sívalur bolur. Breitt og vel fyllt bak. Fremur langar, holdfylltar malir og öflug lærahold. Sterklegir og sverir fætur. Áberandi bollangur og sterklegur hrútur.
Sterkgulur á haus og fótum og talsvert um gul hár í reyfi. Svört hár fundust í ull. Þykkt þel en togið stutt, hrokkið og fíngert. Ullarmagn í slöku meðallagi.
Þróttur er arfblendinn hvítur, hefur erfðavísi fyrir mórauðum lit og tvílit þannig að undan honum á að vera mögulegt að fá afkvæmi með alla liti.
Hlutlaus.
| Lambhrútaskoðun | |||
|---|---|---|---|
| Ár: | 2008 | 2009 | 2010 |
| Fjöldi | 102 | 120 | 45 |
| Þungi | 47.5 | 48 | 45.8 |
| Fótleggur | 108 | 110 | 110 |
| Læri | 17.3 | 17.4 | 17.3 |
| Ull | 7.8 | 7.8 | 7.8 |
| Ómvöðvi | 28.6 | 28.9 | 27.2 |
| Ómfita | 2.8 | 2.8 | 2.7 |
| Lögun | 4 | 4 | 3.9 |
| Kynbótamat (BLUP) | |
|---|---|
|
50 60 70 80 90 100 110 120 130 140 150 |
|
| Gerð |
117 |
| Fita |
123 |
| Kjötgæði |
121 |
| Frjósemi |
110 |
| Mjólkurlagni |
98 |
Þróttur var einn fjölmargra úrvalshrúta um kjötgæði sem fram komu eftir notkun Spaks 00-909 og beindust því augu að honum sem stöðvarhrút.
Hann kom á stöð sumarið 2007.
Hann hefur verið talsvert notaður þau tvö ár sem hann er búinn að vera þar í notkun, en afkvæmi orðið heldur færri en skyldi vegna slakari sæðingaárangurs en hjá flestum öðrum stöðvarhrútum vegna lítilla sæðisgæða.
Afkvæmi hans hafa samt rækilega staðfest að hann er öflug kynbótakind með tilliti til kjötgæða.
Afkvæmi hans eru fitulítil en ákaflega vel vöðvafyllt og prýðisvel gerð.
Talsverð reynsla er komin á Þrótt sem ærföður þar sem ljóst er að hann stendur mun framar föður sínum og mörgum hálfbræðrum.
Dætur hans eru frjósamar ær og reynslan er að sýna að þær eru einnig vel mjólkurlagnar.
Þannig er Þróttur orðinn í hópi mest alhliða kynbótahrúta meðal þeirra sem mikil reynsla er fengin um.