Sauðá, Vatnsnesi
Hvítur, krapphyrndur með frekar langan og nokkuð svipmikinn haus. Aðeins háar en ágætlega fylltar herðar og góðar útlögur. Bakið sterkt og vel vöðvað. Feikilega breiðar og vel fylltar malir. Góð lærahold. Sterkleg fótstaða. Gríðarlega bollangur og fasmikill hrútur.
Gulur á haus og fótum. Gult í ull og svartar doppur á skrokk. Ullarmagn og þel í meðallagi. Togið stutt, einkum á baki, og fremur gróft.
| Lambhrútaskoðun | ||
|---|---|---|
| Ár: | 2010 | 2011 |
| Fjöldi | 156 | 114 |
| Þungi | 46.8 | 47.7 |
| Fótleggur | 109 | 109 |
| Læri | 17.2 | 17.2 |
| Ull | 7.9 | 7.7 |
| Ómvöðvi | 28.2 | 28.2 |
| Ómfita | 2.8 | 2.7 |
| Lögun | 3.9 | 3.9 |
| Kynbótamat (BLUP) | |
|---|---|
|
50 60 70 80 90 100 110 120 130 140 150 |
|
| Gerð |
106 |
| Fita |
130 |
| Kjötgæði |
120 |
| Frjósemi |
102 |
| Mjólkurlagni |
112 |
Kóngur 04-829 var fenginn frá Sauðá á Vatnsnesi sumarið 2009 og var þar byggt á mikilli og góðri reynslu af afkvæmum hans á heima- og nágrannabúi.