Bogi 04-814 

Til baka | Tafla

Frá

Heydalsá, Steingrímsfirði

Ætt

ff: Óri 98-564

f: Erpur 01-919
fm: 97-286
Bogi 04-814
m: 01-505

Framætt: FMF og MMF: Þyrill 94-399



Lýsing

Svipmikill. Breiðar og vel fylltar herðar. Bringan breið og miklar útlögur. Bakið breitt og sterkt. Malir langar, breiðar og vel vöðvafylltar og lærahold eru feikilega mikil. Sterklegir fætur. Bollangur, jafnvaxinn og mjög sterklegur hrútur.

Ullarlýsing

. Þelið er jafnt og þykkt. Togið í grófara lagi, stutt og að mestu horfið á baki. Ullarmagn í meðallagi.

Litaerfðir

Bogi er arfhreinn hvítur.

Arfgerð vegna riðusmits

Hlutlaus.

Lambhrútaskoðun
Ár:  2009 2010 2011
Fjöldi  310 116 211
Þungi  49.9 48.9 48.7
Fótleggur  112 112 111
Læri  17.3 17.3 17.3
Ull  8.3 8.3 8.3
Ómvöðvi  28.9 29.2 28.8
Ómfita  2.9 2.6 3
Lögun  4 4.1 4.1
Kynbótamat (BLUP)
50
60
70
80
90
100
110
120
130
140
150
 
Gerð 
107
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
Fita 
140
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
Kjötgæði 
127
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
Frjósemi 
105
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
Mjólkurlagni 
117
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 

Reynsla

Bogi var fenginn á stöð frá Heydalsá sumarið 2008 og fylgdu honum frækilegar niðurstöður um afkvæmi hans þar heima.
Bogi var feikilega mikið notaður síðasta vetur.
Sæðingaárangur var frekar slakur en samt kom feikilega stór lambahópur undan honum til skoðunar síðastliðið haust.
Þessi hópur staðfestir að hér fer öflugri kollóttur hrútur með tilliti til kjötgæða en áður hefur verið á stöðvunum.
Stór dætrahópur er kominn undan Boga heima á Heydalsá.
Frjósemi dætra hans virðist nálægt meðaltali en þær eru ágætlega mjólkurlagnar og margar þegar mæður hrúta vítt um land.