Kaldi 03-989 

Til baka | Tafla

Frá

Kaldbak, Rangárvöllum
Keyptur frá Selalæk, Rangárvöllum

Ætt

ff: Áll 00-868

f: Hnöttur 02-111
fm: Gestaþraut 95-838
Kaldi 03-989
mf: Sjóður 97-846
m: Hæ-Þrenna 01-087
mm: Hæ-Kola 98-134

Framætt: MMF: Húnn 92-809



Lýsing

Hvítur, hyrndur með fremur langan haus. Herðar fremur háar og örlítið vantar á fyllingu fyrir aftan þær. Útlögur fremur góðar. Átökugott bakið breitt og sterkt. Malir mjög breiðar og vöðvafylltar. Lærvöðvinn þykkur efst í lærum og fyllir vel í krikann. Fótstaðan rétt. Mjög bollangur hrútur.

Ullarlýsing

Fölgulur á haus og fótum. Aðeins um gul hár á baki og mölum. Ullarmagn í meðallagi. Nokkuð mikið þel, togið langt og hrokkið en fremur gróft.

Litaerfðir

Kaldi er arfblendinn hvítur og mun mega fá alla liti hjá afkvæmum hans þar sem hann hefur erfðavísi bæði fyrir mórauðum lit og tvílit.

Arfgerð vegna riðusmits

Hlutlaus.

Lambhrútaskoðun
Ár:  2008 2009 2010 2011
Fjöldi  91 127 20 82
Þungi  46.2 47.8 45.5 46.2
Fótleggur  111 112 111 111
Læri  17.0 17.1 17.2 17.1
Ull  7.9 7.9 7.9 7.9
Ómvöðvi  28.4 28.1 28 27.3
Ómfita  3.1 3 2.9 3.1
Lögun  3.9 3.8 4 3.9
Kynbótamat (BLUP)
50
60
70
80
90
100
110
120
130
140
150
 
Gerð 
96
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
Fita 
128
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
Kjötgæði 
115
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
Frjósemi 
...148
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
Mjólkurlagni 
108
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 

Reynsla

Kaldi kom á stöð sumarið 2007.
Hann kom úr lítilli hjörð þannig að um hann voru ekki jafn miklar upplýsingar og flesta stöðvarhrúta.
Hann hefur verið mikið notaður bæði árin.
Ljóst er að hann er mjög mikil fituleysiskind eins og ættir hans standa til.
Gerð afkvæma hans er aftur á móti verulega breytileg þó undan honum komi alltaf nokkur mjög góð hrútsefni.
Hann getur samt ekki flokkast sem afgerandi kynbótahrútur um vöðvasöfnun.
Fljótlega eftir að Kaldi kom á stöð komu fram vísbendingar um að hann væri með Þokugenið, sem síðan hefur verið staðfest.
Nú er hann því fyrst og fremst í notkun sem slíkur einstaklingur.
Helmingur dætra hans mun erfa eiginleikann og koma til með að sýna ofurfrjósemi.
Mjólkurlagni hjá dætrum hans virðist um meðallag.