Borgarfelli,
Skaftártungu
Keyptur frá
Snæbýli 1,
Skaftártungu
Mórauður, kollóttur. Sver og fríður haus. Breiðar herðar en aðeins vantar á fyllingu aftan þær. Breitt bak og breiðar, allvel holdfylltar malir. Nokkuð góð lærahold. Fótstaða góð. Mjög bollangur en aðeins kviðaður hrútur.
Frekar ljósmórauður litur og til blettir með gráum hárum. Ullarmikill og reyfið jafnt.
Litur Mókolls segir mest nema að til viðbótar er vitað að hann erfir ekki tvílit. Afkvæmi hans geta því borið alla hreina íslenska sauðaliti, sem arfgerð móðurinnar ræður.
Hlutlaus.
| Lambhrútaskoðun | ||||
|---|---|---|---|---|
| Ár: | 2007 | 2008 | 2009 | 2010 |
| Fjöldi | 49 | 51 | 35 | 27 |
| Þungi | 46.6 | 48.5 | 49.6 | 46.4 |
| Fótleggur | 112 | 112 | 112 | 111 |
| Læri | 17.1 | 17.0 | 16.9 | 17.0 |
| Ull | 7.6 | 8 | 7.9 | 7.8 |
| Ómvöðvi | 26.6 | 27.2 | 26.7 | 26.5 |
| Ómfita | 3.5 | 3.3 | 3.1 | 3.3 |
| Lögun | 3.5 | 3.6 | 3.5 | 3.6 |
| Kynbótamat (BLUP) | |
|---|---|
|
50 60 70 80 90 100 110 120 130 140 150 |
|
| Gerð |
102 |
| Fita |
106 |
| Kjötgæði |
104 |
| Frjósemi |
125 |
| Mjólkurlagni |
115 |
Mókollur var fenginn á stöð sumarið 2006 frá Snæbýli fyrst og fremst sem valkostur fyrir þá sem sinna ræktun á mórauðu fé, verkefni sem stöðvarnar hafa lengi reynt að sinna.
Undan honum hefur komið nokkur hópur lamba til skoðunar á hverju hausti.
Hann gefur þroskamikil lömb, fremur vel gerð en ekki mikið um góð hrútsefni.
Bakvöðvi er þunnur í samanburði stöðvarhrúta en kjötgæðamat hans í góðu meðallagi.
Reynsla sem komin er á Mókoll sem ærföður sýnir aftur á móti að sem slíkur er hann mikill yfirburðagripur eins og faðir hans var.
Dæturnar eru með afbrigðum frjósamar og einnig rífandi góðar mjólkurær.
Mókollur er því enn í boði en nú fyrst og fremst sem ærfaðir, þar sem aðrir hrútar með betri mórauðan lit hafa fyllt eldra hlutverk hans.