Frakksson 03-974 

Til baka | Tafla

Frá

Árbæ, Reykhólasveit

Ætt

ff: Bliki 96-467

f: Frakkur 99-045
fm: 98-066
Frakksson 03-974
mf: Laski 98-040
m: Alda 01-343
mm: Táta 94-036

Framætt: FMF: Kópur 95-825



Lýsing

Hvítur, kollóttur. Svipfríður með brúsk í enni. Kúptar og fylltar herðar, útlögur góðar. Sterkt og þykkt bak og breiðar, vel fylltar malir. Ákaflega góð lærafylling. Fótstaða góð. Mjög jafnvaxinn og fríður hrútur á velli.

Ullarlýsing

Hreinhvítur og engin svört hár fundust. Fremur ullarlítill. Reyfið fremur jafnt og togið stutt á köflum en fínt og mjúkt. Glansandi ull.

Litaerfðir

Frakksson er arfhreinn hvítur.

Arfgerð vegna riðusmits

Hlutlaus.

Lambhrútaskoðun
Ár:  2007 2008 2009 2010
Fjöldi  164 70 91 26
Þungi  48.1 47.6 49.6 47.9
Fótleggur  113 113 113 113
Læri  17.1 17.0 17.2 17.2
Ull  8.3 8.4 8.4 8.5
Ómvöðvi  26.9 27.9 27.4 27.3
Ómfita  3.5 3.3 3.3 2.7
Lögun  3.7 3.9 3.9 3.7
Kynbótamat (BLUP)
50
60
70
80
90
100
110
120
130
140
150
 
Gerð 
117
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
Fita 
106
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
Kjötgæði 
110
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
Frjósemi 
106
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
Mjólkurlagni 
106
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 

Reynsla

Frakksson kom á stöð haustið 2006 og flutti með sér góða reynslu sem lambafaðir frá Árbæ.
Hann hefur síðan verið talsvert mikið notaður á hverju ári og hópur verulega góðra lamba komið til skoðunar á hverju hausti.
Gerðin er mjög góð, yfirleitt mjög prúðar kindur á velli en bakvöðvaþykkt lambanna yfirleitt breytilegasti þátturinn.
Margir efnilegir synir hans eru þegar í notkun vítt um land.
Frakksson er einnig kominn með verulega reynslu sem ærfaðir og er greinilega góður kynbótahrútur einnig sem slíkur.
Dætur hans eru bæði frjósamar og mjólkurlagnar.